Eilífð hannar og framleiðir minningarsteina með QR kóða — sem leiðir inn á minnigarsíðu viðkomandi.

Hugmyndin
Ástvinir lifa með okkur í minningum að eilífu.
Við geymum dýrmætustu augnablikin á öruggum stað, þar sem sögurnar lifa áfram með komandi kynslóðum.

Efnið og handverkið
Hver steinn er unninn úr íslensku hrauni, með ryðfríum stálplatta og lasergröfnum QR kóða.
Efni sem þola íslenskt veður og standast tímans tönn — hönnuð með einfaldleika og reisn að leiðarljósi.
Svona virkar þetta
Steinninn
Minningarsteinninn er úr íslensku hrauni með lasergröfnum QR kóða á ryðfríum stálplatta.
Skanna kóðann
Skannaðu QR-kóðann með símanum til að opna minningarsíðuna.
Minningarnar
Á hverri síðu má finna myndir, myndbönd, ævisögu og kveðjur frá ástvinum.

Minningarsíðan
Á minningarsíðunni getur fjölskylda og vinir safnað saman myndum, sögum og kveðjum um þann sem farinn er.
- Ljósmyndir, ævisaga og ævitímalína
- Gestabók þar sem þú samþykkir hverja kveðju
- Myndaveggur fyrir myndir og myndbönd
- Þú stjórnar alltaf hverjir mega breyta efninu
Skoðaðu verslunina — minningarsíðan fylgir hverjum steini. Eða hafðu samband.